Heim Google Apps Atmos þjónusta Hvað er Atmos Hafðu samband
Algengar spurningar

Hvað kostar Google Apps?


Google Apps er í áskrift og kostar jafnvirði USD 50 á ári fyrir hvern notanda. Það er, þegar þetta er skrifað, um 6 þúsund krónur á ári auk vsk (nóv 2011).

Ég er með mörg netföng, hvað kostar hvert netfang?

Í Google Apps er bara rukkað fyrir notendurna, þ.e. í raun pósthólfin. Þú getur verið með mörg netföng annað hvort með því að nota gælunöfn (e. nickname) sem þá er bundið við eitt pósthólf eða hópa (e. groups) en þá geta margir verið að fá póst í gegnum sama netfangið.

Er ég þá alltaf með nafniðmitt@gmail.com?

Nei, Google Apps er á þínu eigin léni. Við erum að nota Google Apps og netföngin okkar eru t.d. thoranna@atmos.is og andri@atmos.is  - kerfið notar bara sömu tækni og gmail.

Hvað kostar að láta setja upp Google Apps fyrir sig?

Grunnuppsetning hjá Atmos er á kr. 15 þúsund + vsk þegar þetta er skrifað (nóv 2011). Þá er búið að setja þjónustuna upp, stilla hana á lén og virkja þjónusturnar og lausnin er tilbúin til notkunar. Hægt er að fá aðstoð við allar frekari stillingar ef keyptir eru þjónustutímar hjá Atmos.

Skiptir máli hvort ég kaupi beint af Google eða í gegnum Atmos?

Nei og já. Verðið er það sama, þ.e. jafnvirði USD50 per notanda á ári. Hinsvegar getur Atmos illa aðstoðað þig eða þjónustað í framhaldinu, ef þú kemur til með að þurfa það, þar sem við höfum ekki aðgang að stjórnborðinu þínu eða neinum stillingum. Við mælum því með því að taka áskriftina í gegnum Atmos, jafnvel þó þú notir ekkert annað af okkar þjónustu, þannig að þú hafir það þá í bakhöndinni að geta leitað til okkar ef eitthvað er.

Sumir viðskiptavinir hafa líka viljað kaupa í gegnum Atmos þar sem 20% af verðinu verður þá eftir hjá íslensku fyrirtæki ;)

Hvað skiptir mestu máli þegar farið er með fyrirtæki yfir í Google Apps?

Okkar reynsla er sú að uppsetningin á kerfinu sé í raun minnsta málið. Eins og með allar breytingar og innleiðingu á nýjum kerfum er mannlegi þátturinn það sem skiptir máli. Okkar reynsla er sú að ánægja með kerfið og nýting á því sé mun betri ef starfsfólk fær góða kynningu og jafnvel námskeið á kerfið. Við höfum farið með fjölda fyrirtækja af ýmsum stærðum yfir í Google Apps og eftir innleiðingu heyrum við yfirleitt aldrei í þeim meir, nema þau þurfi að fjölga eða fækka notendum. Þetta er annars vegar vegna þess að við leggjum áherslu á að allir þekki kerfið og sé farið að líða vel með það, og hinsvegar vegna þess að kerfið er svo einfalt og auðvelt í notkun.

Hvað með allan gamla póstinn minn? Get ég flutt hann yfir?

Hægt er að flytja póst úr fyrri kerfum, já. Atmos getur veitt frekari ráðgjöf varðandi það eða annast flutninginn.

Hvað með alla tengiliðina í tengiliðabókinni minni, get ég flutt þá yfir?

Þú getur flutt alla tengiliðina þína úr öðrum kerfum eins og Outlook og Lotus Notes. Atmos getur veitt frekari ráðgjöf varðandi það eða annast flutninginn.


Ertu með aðrar spurningar? Sendu okkur línu á atmos@atmos.is